Færsluflokkur: Bækur

Sumarveður.....

Hér er yndislegt veður og nú er sumarið örugglega komið.Var að lesa á mbl að spáin væri góð fyrir helgina.Svo er búið að opna laugina og maður fer örugglega með krakkana að svamla.Lögin er er mjög heit og góð, mæli með henniHalo.Annars er allt gott að frétta af okkur, og allir hafa það gott.Sumarið gefur öllum líf og lit sem það vilja inn í líf sitt.Hlakka til að sjá skemmtiferðaskipin koma inn pollinn, svo er frændi minn að fara setja upp hvíta kollinn =).

bless í bili Adda.

GrandPrincess3


Mjög gott málefni.

Flott málefni og yndislegt að heyra af góðum fréttum ekki bara um kreppu eða bankasvik!


mbl.is Styrktu átta verkefni í þágu barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt Sumar.

Gleðilegt sumar kæru vinur og bestu þakkir fyrir veturinn.

 

sumar


Bolla Bolla Bolla.

Gleðilegan bolludagSmile.
 
Hér voru bakaðar bollur í gær og því tekið forskot á sæluna, og saltkjötið rann ljúflega niður.Hér er búið að vera hið besta veður, en snjóaði í gær.Úti er rigning og hiti er nokkrar gráður.
Hafið það gottSmile.
 
AlbumImage

Nýárskveðjur.Blogg 1.

Óska ykkur Gleðilegs árs og megi árið 2010 verða ykkur gæfuríkt og bjartSmile.
 
Bestu kveðjur.
 
956332893Flugeldar
 

Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Hún boðar náttúrunnar jól,
hún flytur líf og líknarráð,
hún ljómar heit af Drottins náð.

 
 

Ávextir geimtækninnar

Nú er liðin hálf öld síðan fyrsta gervitunglinu, Sputnik 1, var skotið á loft. Kostnaðurinn við geimskot og geimferðir hefur vissulega verið mikill, og margir hafa lýst efasemdum um réttmæti þess að eyða svo miklu fé í slíkar framkvæmdir, fé sem hefði mátt nota til að leysa brýnni þarfir fólks. Einkum hafa mannaðar geimferðir verið gagnrýndar á þeim forsendum að sjálfvirk eða fjarstýrð tæki - þjarkar - hefðu skilað svipuðum árangri með mun minni kostnaði. Þetta gefur tilefni til að staldra við og spyrja hvað geimtæknin hafi fært okkur í aðra hönd, hvort þessi sókn út í geiminn hafi komið að einhverju gagni á jörðu niðri.  

Sumir ávextir geimtækninnar eru öllum augljósir, því að þeir eru orðnir hlutir af daglegu lífi flestra jarðarbúa. Þar má nefna fjarskipti um gervitungl sem gera mönnum kleift að fylgjast með sjónvarpsfréttum um allan heim og hafa símasamband við menn í fjarlægum heimsálfum og í óbyggðum. Veðurtunglin svonefndu hafa valdið byltingu í veðurathugunum og veðurspám. Enginn þarf lengur að villast ef hann hefur tæki sem nýtir gervitungl (GPS) til að finna stöðu sína með mikilli nákvæmni. Slík tæki eru notuð í sívaxandi mæli, bæði í flugi og á jörðu niðri í margvíslegum tilgangi. Sívakandi augu gervitungla hjálpa jarðfræðingum við leit að olíu, öðrum jarðefnum og ferskvatni og gera mönnum kleift að fylgjast með breytingum á gróðri jarðar, mengun andrúmslofts, vara við flóðum, finna óþekktar fornminjar, skógarelda, olíumengun í sjó o.fl. Listinn er nánast endalaus.  

Aðrir ávextir geimtækninnar eru ekki eins augljósir. Stafrænar myndavélar voru upphaflega hannaðar til að taka myndir úr gervitunglum. Sama er að segja um myndtækni sem nú er farið að nota í öryggisskyni til að sjá í gegnum fatnað flugfarþega. Þegar Geimvísindastofnun Bandaríkjanna var að undirbúa mannaðar tunglferðir var fundin upp sérstök aðferð til að gera myndir af tunglinu skýrari. Þetta varð undirstaða þeirrar tölvusneiðmynda- og segulómunartækni sem nú er notuð á sjúkrahúsum. Stafræn myndtækni sem þróuð var til að kanna gufuhvolf jarðar kemur nú að gagni við brjóstaskönnun. Ofurnæmar kísliflögur, hannaðar fyrir Hubble sjónaukann, nýtast við sýnatökur þar sem grunur leikur á krabbameini. Ljóstvistar sem ætlaðir voru til jurtatilrauna um borð í geimskutlunni hafa verið notaðir við lækningar. Rannsóknir á litningum í því skyni að finna óæskileg einkenni styðjast við tækni sem þróuð var til að kanna ljósmyndir utan úr geimnum. Einangrunarefni ætlað fyrir geimskutluna hefur verið notað við smíði gervilima. Innrauðir hitaskynjarar smíðaðir til að mæla hitastig stjarna úr gervitunglum, eru nú notaðir til að mæla líkamshita sjúklinga á fáeinum sekúndum. Geimmyndatækninni hefur einnig verið beitt til að lesa forn skjöl svo sem biblíuhandrit og greina myndir sem málarar hafa málað yfir.

Ýmiss konar notkun Teflons til húðunar komst á strik eftir að farið var að nota það í geimnum, þótt efnið væri  komið til sögunnar löngu fyrr. Fyrsta hleðsluborvélin var hönnuð til að gera geimförum kleift að taka sýni á tunglinu. Reykskynjarar voru þróaðir fyrir geimstöðina Skylab. Síur sem nú eru notaðar fyrir neysluvatn voru fyrst notaðar til að hreinsa drykkjarvatn tunglfara. Sólsellur sem margir binda nú vonir við, voru upphaflega hannaðar fyrir gervitungl. Sama er að segja um liþín rafhlöður sem notaðar eru í tölvum og myndavélum.

Ein besta aðferðin til einangrunar húsa nú á dögum tekur mið af hitavarnarhlífum geimflauga. Þök á verslunarmiðstöðvum, íþróttavöllum og flughöfnum hafa verið klædd með teflonhúðuðu glerþráðaefni sem hannað var fyrir geimbúninga. Grafítstyrkt kolþráðaefni var fyrst notað í stefni geimskutlunnar, en notkun þess hefur síðan breiðst út til jafn óskyldra hluta og tennisspaða og kappakstursbíla.  Efni sem þróað var í búninga fyrir tunglfara reyndist afar heppilegt til að skýla slökkviliðsmönnum og slösuðu fólki. Sprengiboltar, hannaðir til að losa geimskutluna frá burðarflaug sinni, leiddu til öflugri tækja til að losa fólk sem fast er í farartæki eftir árekstur.

Þetta er engan veginn tæmandi upptalning. Geimferðastofnun Bandaríkjanna heldur því fram að meira en 1300 nytsamar nýjungar hafi komið fram við þróun geimtækninnar.

Heimild: The Sunday Times Magazine, 7. október 2007.

 

graenmeti


Gleðilega páska kæru vinir!

Kæru vinir og lesendur.Óska ykkur gleðilegra páska, og megi þið njóta þeirra.Gleymið ykkur í súkklaði og sælu, og njótið þess að vera í fríi!

HappyEaster-Bunny

Í austri rís upp ársól skær,
í austri sólin, Jesús kær,
úr steinþró djúpri stígur,
sú páskasólin björt og blíð,
er birtist öllum kristnum lýð
og aldrei aftur hnígur.
Jesús, Jesús,
sigu’r er unninn, sól upp runnin
sannrar gleði
vina þinna grátnu geði.

Valdimars Briem


Stephen Crane

 Stephen Crane  
1. Rithöfundurinn Stephen Crane                                                         portrait_2_saga
Stephen Crane er einn þeirra manna sem, þrátt fyrir að hafa ekki notið langra lífdaga, markaði stór spor í bókmenntasögu þjóðar sinnar og hafði djúp áhrif á þá sem eftir komu. Strax með fyrstu bók sinni „Maggie. A girl of the streets“, sem enginn útgefandi vildi bendla nafn sitt við, var tónninn gefinn og með sögunni „The Red badge of courage“ hafði hann fest sig í sessi sem fremstur meðal jafningja í amerískum bókmenntum síns samtíma.

2. Æska og uppvöxtur
Stephen Crane fæddist þann 1. nóvember árið 1871 í Newark, New Jersey og var hann fjórtánda og yngsta barn foreldra sinna, meþódistaprestsins Jonathan Townley Crane og konu hans Mary Helen (Peck) Crane. Eftir því sem að best verður séð virðist pabbi hans hafa verið góður maður, vinnusamur með afbrigðum, en nokkuð þröngsýnn og mjög strangtrúaður. Móðir hans var einnig mjög trúuð og starfaði mikið við trúboð og safnaðarstörf.

Faðir Stephen´s skipti nokkuð oft um prestaköll á þessum tíma og vegna þess staldraði fjölskyldan sjaldan lengi á einum stað, uns þau enduðu í Port Jervis, New Jersey, þar sem faðir hans lést árið 1880. Til að ala önn fyrir fjölskyldunni fór Mary, móðir Stephen´s þá að vinna sem frétta- og greinaskrifari fyrir ýmis trúarleg blöð og tímarit. Þremur árum síðar fluttist hún svo ásamt Stephen til Asbury Park í New Jersey. Þrátt fyrir að alast upp í þessu mikla trúarumhverfi, var Stephen lítt hneigður til trúar, en þó má merkja þetta trúarlega uppeldi víða í ritverkum hans. „Í fyrstu líkaði mér vel að hlýða á guðsþjónustur og bænalestra, en það óx af mér þegar ég var þrettán ára eða þar um bil, en þá sagði William bróðir minn mér að hætta að trúa á helvíti, eftir að frændi minn hafði útlistað fyrir okkur í löngu máli, eldvatninu og öllum þeim hörmungum”, var haft eftir honum síðar á ævinni. En þó svo að trúaráhuginn hafi dvínað snemma virðist áhugi hans á skrifum fyrst hafa vaknað fyrir alvöru á þessum árum, en þá skrifar hann stutt verk sem hann kallaði „Sketches from life” (Skissur úr lífinu).


3. Upphaf blaðamennsku og endaslepp skólaganga
Árið 1888, þá sautján ára gamall, fer hann að starfa sem fréttaritari fyrir bróður sinn Townley, en hann var ritstjóri fréttablaðs í Asbury Park. Þá um veturinn hefur hann svo nám við menntaskóla, sem sérhæfði sig í að undirbúa menn fyrir herþjónustu. Var hann ánægður þar og stundaði námið af nokkurri alúð, en það var helst í íþróttum sem hann skaraði framúr.

Árið 1890 lá svo leiðin í háskólann í Lafayette þar sem hann hugðist leggja stund á verkfræði. Einhvern veginn virtist hugur ekki fylgja máli og stundaði hann námið þar afar illa. Var honum ráðlagt af skólayfirvöldum að yfirgefa skólann við lok fyrstu annar. Ári síðar gerði hann aðra tilraun til að verða sér úti um háskólagráðu og nú við háskólann í Syracuse, en aftur var skólagangan endaslepp. Reyndar eyddi hann mestum tíma þar í að skrifa fyrsta uppkastið af sögunni, „Maggie. A girl of the streets“.


4. Fátækur í New York og gefur út Maggie
Hann snýr aftur heim og það sama ár deyr móðir hans. Nú var ekkert lengur til að halda í hann heima fyrir og hann heldur til New York ákveðinn í að reyna fyrir sér sem blaðamaður og rithöfundur. Þar dvaldi hann næstu fimm árin og var vistin þar honum oft erfið, enda var vinna stopul fyrir lausamennsku blaðamann. Höfðu systkini hans miklar áhyggjur af honum á þessum árum og hvöttu hann óspart til að verða sér úti um fast starf, en hann lét allar slíkar vangaveltur sem vind um eyru þjóta. En það er óhætt að segja að þessi ár hafi verið mikil mótunarár í lífi Cranes, sem bjó í einu af fátækrahverfum borgarinnar og í því umhverfi tókst honum að þróa söguna „Maggie. A girl of the streets“ áfram og glæða hana því lífi sem hann var sáttur við, en margir telja hana fyrstu bandarísku raunsæisskáldsöguna. Lýkur hann sögunni árið 1892, en þrátt fyrir mikla leit fann hann engan sem var fáanlegur til að gefa hana út. Ætlaði hann þá að nota arfinn sem hann fékk eftir foreldra sína til að standa straum af kostnaðinum, en eftir því sem sagan segir á hann að hafa eytt megninu af honum í fjárhættuspil. Því fær hann bróður sinn til að lána sér 700 dollara svo hann geti sjálfur gefið hana út. Er sagt að þeir sem önnuðust prentun sögunnar hafi skammast sín fyrir að prenta slíka sögu. Þessi fyrsta útgáfa sögunnar taldi einungis eitt hundrað eintök og seldist nánast ekkert. Segir sagan að bróðurpart bókanna hafi Crane notað til að kynda upp hjá sér.

En þó svo að almenningur hafi ekki tekið bókina í sátt fyrr en mörgum árum síðar, vakti hún athygli nokkurra bókmenntamanna, sem sáu hvað bjó í þessum unga rithöfundi og hvöttu hann til að halda áfram, sem hann og gerði.


5. The red badge of courage
Tveimur árum síðar, eða árið 1895, gaf hann svo út bókina „The red badge of courage”, hans þekktasta og kannski besta verk. Hún fjallar um ungan mann sem heldur í stríð og lýsir af ótrúlegu næmi, tilfinningum hans og baráttu á vígvellinum. Þóttu lýsingar Crane´s á bardögum ótrúlega raunverulegar og einstakar í sinni röð. Verður það að teljast mikið afrek af svona ungum manni, ekki síst fyrir þá sök að hann hafði sjálfur enga reynslu af stríði og aldrei orðið vitni að bardögum.

Bókin gerði hann frægan svo að segja á einni nóttu, en þrátt fyrir það seldist hún dræmt og hafði hann minna en hundrað dollara upp úr krafsinu. En athyglin sem hann hlaut fyrir söguna varð til þess að honum bauðst starf sem blaðamaður og var hann sendur til Texas og Mexíkó. Ári síðar er hann svo sendur til Grikklands til að skrifa fréttapistla um stríðið sem þá stóð yfir milli Grikkja og Tyrkja.


6. Í sjávarháska
Þegar hann kemur aftur heim frá Grikklandi hefur hann fest sig í sessi sem ábyggilegur fréttaritari, með sinn eigin sérstaka stíl. Í kjölfarið er ákveðið að senda hann til Kúbu til að afla frétta um vaxandi átök milli Bandaríkjanna og Spánverja, en eyjan var þá undir yfirráðum Spánverja. Hefur hann viðdvöl í Jacksonville meðan hann bíður eftir fari þangað. Í Jacksonville kynnist hann Coru Taylor, sem rak þar næturklúbb. Hafði hún lesið bæði ,,Maggie" og ,,The Red badge of courage" og tókust strax með þeim náin kynni.

Loks heldur Crane af stað til Kúbu á skipinu Commodore, en þeir hreppa vond veður og skipið sekkur 2. janúar árið 1897. Komst Stephen við fjórða mann um borð í lítinn opinn björgunarbát og urðu þeir að berjast fyrir lífi sínu í tvo sólarhringa í vondu veðri þangað til þeim tókst með mikilli þrauseigju að ná landi. Voru þeir þá nær dauða en lífi. Af viðtölum sem tekin voru við þá sem björguðust kemur fram að Stephen hafi allan tímann frá því að leki komst að skipinu og þangað til þeir náðu landi sýnt mikið æðruleysi og baráttu. Varð þessi hrakningaferð kveikjan að sögunni „An open boat”, sem margir telja til hans bestu sagna. En ófarir þessar höfðu líka önnur og verri áhrif, því í þeim beið hann mikið heilsutjón og upp úr þeim varð fyrst vart berkla hjá honum, sem á endanum drógu hann til dauða langt fyrir aldur fram. Meðan hann var að jafna sig eftir volkið í Jacksonville urðu kynni hans og Coru Taylor enn nánari. Seldi Cora næturklúbbinn og saman héldu þau til Grikklands, þar sem Stephen var fréttaritari fyrir ,,The Journal".

7. Flytur til Englands, giftist og deyr
Strax frá því að sagan ,,Maggie" birtist fyrst á prenti hafði Crane orðið fórnarlamb ýmissa slúðursagna, og þegar hann kemur heim frá Grikklandi ágerðust þær. Rótin að þessu slæma umtali má sennilega rekja til bókarinnar ,,Maggie", sem fjallaði um vændiskonu og vegna veikinda sinna og slappleika í kjölfar sjávarháskans við Kúbu, héldu margir að hann væri eiturlyfjafíkill. Líkaði honum þetta illa og ákvað að flytjast til Englands. Það er svo í London árið 1898 að hann giftist Coru. Þó svo að margir efuðust um þennan ráðahag og töldu Coru af allt öðru sauðahúsi en Stephen, var skammvinnt hjónaband þeirra hamingjusamt. Í Englandi vissu menn ekkert af fortíð Coru og tóku henni sem jafningja.

Á Englandi kynntist Stephen Joseph Conrad og urðu þeir góðir vinir, en Conrad var einlægur aðdáandi Crane´s. Þá kynntist hann þar einnig rithöfundunum Henry James og H. G. Wells. Var alla tíð mjög gestkvæmt á heimili þeirra á Englandi og stundum svo mjög að Stephen átti erfitt með að einbeita sér að skriftum. Það var því ákveðinn léttir fyrir hann þegar hann var beðinn um að fara til Kúbu og skrifa um stríðið milli Bandaríkjanna og Spánverja. En heilsan leyfði ekki það erfiði sem þetta hafði í för með sér og hann veiktist hastarlega og hélt aftur til Englands.

Það var svo árið 1900 að honum versnar veikin enn frekar og er fluttur með hraði til Badenweiler í Þýskalandi þar sem hann lést 5. júní.

8. Um verk Crane´s
Þó að Stephen hafi einungis verið 28 ára gamall þegar hann lést, hafði hann þá þegar með verkum sínum skapað sér varanlegan sess í bókmenntasögunni. Howell´s sagði t.a.m að sagan „The Open boat“ væri besta smásaga sem skrifuð hefði verið á enska tungu. Edward Garnett taldi Crane hafa verið helsta impressionistann þegar hann var uppi og Woolcott segir söguna „The Blue hotel“ vera stórfenglega sögu í stíl Ernest Hemingway, þó hún sé skrifuð áður en Hemingway fæddist. Þannig mætti lengi telja, en svipaða dóma fá sögur á borð við ,,Maggie, a girl of the street" og ,,The Monster". En stærsti bókmenntasigur Crane´s er og verður ávallt sagan ,,The Red badge of courage"; stríðssagan sem snart hug og hjarta fyrrverandi hermanna, sem þóttu lýsingarnar ótrúlega sannar, en Stephen var einungis 23 ára gamall þegar hann samdi hana og hafði enga reynslu af stríði. Þá má heldur ekki gleyma ljóðum Stephen´s, en þar hafði hann orðið fyrir miklum áhrifum frá Emily Dickinson.

Hvernig svo sem menn vilja flokka hann sem höfund; hvaða stimpil sem menn vilja eigna honum; hvort bækur hans væru raunsæjar eða impressjónískar, þá verður hans kannski fyrst og fremst minnst fyrir næman skilning á viðfangsefnum sínum, sem þá þóttu ekki gjaldgeng í bókmenntum. Það má kannski segja að vinur hans, rithöfundurinn Joseph Conrad lýsi honum best er hann sagði um hann, „að hann hefði ekkert yfirborð... en kraumaði undir niðri.”


Um bloggið

Adda Laufey

Höfundur

Adda Laufey
Adda Laufey
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 1001413 10201906085996653 685346860 n
  • Untitled
  • 291931 4669772905171 381517791 n
  • 143
  • 529151 4459427366664 222325737 n

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 767

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband