Færsluflokkur: Vefurinn
14.6.2010 | 02:50
Eldur í Laufási
Sem betur fer urðu ekki miklar skemmdir, þó tjón hafi sennilega orðið nokkuð.Þetta er einn fallegasti kirkjustaður landsins og hver sem hann heimsækir heillast.Frábært hjá fólkinu að tilkynna eldin strax, á hrós skilið!
Einnig finnst mér táknrænt að prestsonurinn hafi byrjað fyrstur á að bjarga bænum.Gamli presturinn hann Séra Pétur Þ var engum líkur, hann var prestur barna sem fullorðina, en sérstaklega náði hann til barnanna.Séra Bolli er yndæll prestur, sem mun færa sveitinni gæfu.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
Pétur Þórarinsson
Eldur í Laufási | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Adda Laufey
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar